15. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 6. nóvember 2018 kl. 09:10


Mættir:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:10
Þorsteinn Víglundsson (ÞorstV) 1. varaformaður, kl. 09:10
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:10
Ásgerður K. Gylfadóttir (ÁsgG), kl. 09:10
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:10
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 09:10
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:10
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:10
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:10
Smári McCarthy (SMc), kl. 09:10

Ásgerður Kristín Gylfadóttir yfirgaf fundinn kl. 10:25.

Nefndarritari: Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerð 14. fundar var samþykkt.

2) Ný peningastefna Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund starfshóp um endurmat á peningastefnu Íslands, Ásdísi Kristjánsdóttur, Illuga Gunnarsson og Ásgeir Jónsson, sem kynntu skýrslu sína, „Framtíð íslenskrar peningastefnu“ og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 3. mál - breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2019 Kl. 10:50
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Gunnar Val Sveinsson, Þorstein Þorgeirsson, Bergþór Karlsson og Guðmund Sigurðsson frá Samtökum ferðaþjónustunnar.

4) Önnur mál Kl. 11:15
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:15